Freyja

Týnd í tölvunni

þriðjudagur, mars 20, 2007

ahhhhh hvað þetta var nú hressandi helgi. Fórum á Akureyri eftir vinnu og læknastúss á fimmtudag og brunuðum á eðalkagganum norður í land. Fór vel um alla ferðamenn og samferðamenn sem skelltu sér bílasölurúnt tveim tímum fyrir áætlaða brottför og festu kaup á enn stærri krúser! Fengum þessa líka flottu íbúð og fengum við holufólkið algjört víðáttubrjálæði í stofunni.´Pétur og Jónas Nói nutu þessarar víðáttu til þess ítrasta og þeystu um stofuna þvera og endilanga, annar á yfirferðarskriði og hinn hlaupandi á tveimur jafnfljótum.

Tókum föstudaginn snemma (við sáum um að ræsa mannskapinn) og vorum mætt upp í fjall um hálf tíu. Það skelltu Ársól og Nökkvi sér á skíði ásamt köllunum. leið ekki á löngu þar til ég bættist í hópinn þar sem ég gat prangað syninum inn á þær stöllur Sigurrós og Mæju. Frábært veður og ferlega gaman. (fylgir ekki sögunni hvað ég er hrykalega léleg á skíðum...) En Ársól sem var að fara í fyrsta sinn stóð sig eins og hetja og silgdi hægt og rólega niður brekkurnar. En félagi hennar Nökkvi nennti nú ekki neinu hangsi og þaut niður brekkurnar á bruni svo ekkert sást nema hvítur snjór sem þyrlaðist upp. Laugardagurinn var eins, skemmtum okkur í brekkunum og skruppum svo í heimsókn til Minnýar og Ara í flotta sumarhúsið þeirra. Á sunnudag var ferðinni stefnt heim á leið og ætluðum við að verða á undan óveðrinu sem búið var að spá. En nixen dixen Ísland sýndi okkur hvernig maður verður að vera við öllu búinn þegar að veðráttu kemur og keyrðum við fljótlega inn í niðdimman storm með öllu tilheyrasndi. Og komumst við að lokum inn að Staðarskála, sem ég btw sá ekki frá veginum, hvað þá skiltið við vegkantinn, svo blint var skyggnið.En með smá útúrdúr komumst við á leiðarenda. Fórum Laxárdalsheiði og þaðan yfir í Heydalinn. Þar var þessi líka blíða og var þetta því fallegur útsýnisútúrdúr!! Pétur var ótrúlega stilltur nema þegar duddan hans týndist og varð að stoppa næsta bíl og fá varasnuðið hans Jónasar Nóa lánað. Eftir það gat litli maðurinn sofnað. Ársól sat bara og prjónaði eins og óð væri, hún lætur smá óveður ekkert á sig fá. Komum loks heim eftir tæpra 9 tíma ferðalag.

Í gær fór Pétur síðan til læknis að láta setja rör í eyrun og til að láta fjarlægja nefkirtilinn. Aðgerðin gekk mjög vel og tók stutttan tíma. En hann var nú ekki tilbúinn að vakna eftir svæfinguna og var mjög slappur í allan gærdag. Ældi og leið greinilega mjög illa, en nú er þetta ellt orðið betra og við ætlum að halda okkur innandyra í dag og verðum orðin öfga spræk á morgun.

þar til síðar kv Freyja

4 Ummæli:

Þann 20 mars, 2007 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Takk fyrir frábæra helgi. Næsta Akureyrarferð verður prufað að fara í Sjallann.. ja eða Allan eða hvað þetta allt heitir ;)

Ársól gæti kannski prjónað eina lopapeysu fyrir mig... hún er svo assskoti öflug :)

Kveðja, Srós og co

 
Þann 11 apríl, 2007 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Fjör hjá ykkur á fróni - maður fær bara heimþrá að lesa um þessa snjóhelgi hjá ykkur. Fínt nýja lúkkið á heimasíðunni - þú lagar kannski nafnið hennar Silju Kolbrúnar - hehe!
Bestu kveðjur í bæinn frá okkur öllum, Sigrún, Skúli, Guðjón Steinn og Silja Kolbrún.

 
Þann 02 júlí, 2007 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Díses...síðasta blogg í mars.
Þetta kallast nú ekki góð fréttamiðlun til ættinga sem búa fjær en ekki nær.

Kvart, kvart, kvart....

Kveðja,

Kiðlingur

 
Þann 03 júlí, 2007 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Kiðlingur heldur að síðan þín sé alveg frosin, allavegana...

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ elsku frænka! Vonandi áttu góðan dag í blíðunni. :o)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim